Það er fátt sem mér þykir sumarlegra en grillaðar risarækju tacos. Hérna grilla ég líka maís með og sker svo kornin frá stönglinum, en maísinn verður extra sætur og góður svona grillaður.
Berið fram með uppáhalds hot sósunni ykkar og þetta getur ekki klikkað!
Fyrir 2:
Risarækjur, 450 g
Cumin, 1 tsk
Reykt paprika, 1 tsk
Hvítlauksduft, 1 tsk
Hvítkál, 200 g
Kóríander, 8 g
Límóna, 1 stk
Hvítlauksrif, 1 stk
Japanskt majónes, 45 ml / Má vera venjulegt
Tortilla vefjur litlar, 6 stk
Radísur, 2 stk
Lárpera, 1 stk
Maísstöngull, 1 stk
Afþýðið rækjur og setjið í skál með skvettu af olíu, cumin, reyktri papriku, hvítlauksdufti og salti eftir smekk. Látið marinerast í 30 mín eða lengur.
Sneiðið hvítkál mjög þunnt, helst með mandolíni (farið varlega!). Saxið kóríander. Setjið hvítkál og kóríander í skál með 1 pressuðu hvítlauksrifi, berki af hálfri límónu og japönsku majónesi. Blandið vel saman og smakkið til með salti og límónusafa.
Nuddið maísstöngul með olíu og saltið. Grillið í um 10 mín samtals en snúið reglulega.
Þræðið rækjur á grillpinna og grillið í um 2 mín á hvorri hlið.
Sneiðið lárperu og radísur. Skerið maísbaunirnar frá stönglinum.
Raðið saman hvítlauks límónu hrásalati, rækjum, maís, lárperu og radísum. Toppið með uppáhalds hot sósunni ykkar.
Comments