top of page

Nautalund með sveppasósu, bökuðum gulrótum og hvítlauks-kartöflumús

Eitt það besta sem ég fæ er lungamjúk nautalund enda fátt betra þegar gera á vel við sig.


Hérna erum við að tala um pönnusteikta nautalund með ljúffengri sveppasósu, bökuðum gulrótum og ómótstæðilegri hvítlauks-kartöflumús. Það sem gerir þessa kartöflumús extra góða er að hún er stútfull af hvítlauk sem búið er að baka í ofni þar til hann er gylltur og mjúkur og helling af parmesanosti.


Verði ykkur að góðu!

Fyrir 4:

Nautalund, 4x 200 g steikur

Kartöflur, 1 kg (Premier)

Hvítlaukur, 5 stór rif

Parmesanostur, 20 g

Sveppir, 250 g

Skalottlaukur, 40 g

Fersk timian, 2 msk saxað

Rjómi, 350 ml

Rauðvín, 150 ml

Nautateningur, 1 stk

Gulrætur, 400 g

 
  1. Vefjið 4 hvítlauksrifum inn í álpappír með skvettu af ólífuolíu og smá salti. Skerið gulrætur í bita og veltið upp úr olíu, salti og 1 msk söxuðu timian. Setjið gulrætur og innpakaða hvítlaukinn í eldfast mót og bakið í miðjum ofni í 30-35 mín.

  2. Sneiðið sveppi og saxið skalottlauk smátt. Hitið smá olíu á pönnu ásamt 2 msk af smjöri og steikið sveppi þar til þeir hafa losað úr sér mesta vökvann. Bætið skalottlauk út á pönnuna ásamt 1 msk af söxuðu timian og steikið áfram þar til laukurinn mýkist. Pressið hvítlauk út á pönnuna og steikið þar til hvítlaukurinn fer að ilma. Smakkið til með salti og færið svo allt yfir í skál og geymið til hliðar. Þurrkið aðeins úr pönnunni.

  3. Setjið kartöflur í pott með vatni og ríflegu magni af salti og náið upp suðu. Látið krauma þar til kartöflurnar eru mjúkar í gegn. Hellið vatninu frá og skrælið kartöflurnar. Pressið kartöflurnar með kartöflupressu eða stappið með kartöflustappara út í pottinn sem þær voru soðnar í. Slökkvið á hitanum og geymið undir loki á meðan unnið er í öðru.

  4. Hitið 1 msk af olíu ásamt klípu af smjöri við frekar háan hita á pönnu og steikið steikurnar í 3,5 -4,5 mín (fer eftir þykkt) á hvorri hlið fyrir medium rare steikingu. Takið kjötið af pönnunni og geymið á disk til hliðar.

  5. Bætið rauðvíni út á pönnuna og skafið úr botni pönnunar á meðan rauðvínið sýður niður um helming. Bætið 2,5 dl af rjóma út á pönnuna ásamt nautatening og látið malla í smástund þar til sósan fer að þykkjast. Bætið sveppa/skalottlaukblöndunni út í sósuna ásamt smjörklípu og látið malla í smástund. Bætið kjötinu út á pönnuna ásamt vökvanum af disknum og takið af hitanum.

  6. Pressið bakaða hvítlaukinn saman við kartöflurnar í pottinum og stillið á miðlungshita. Hrærið 50 g af smjöri saman við kartöflurnar ásamt 1 dl af rjóma or rífið parmesan saman við. Bætið við meiri rjóma eða mjólk ef kartöflumúsin er of þykk. Smakkið til með salti og berið fram þegar kartöflumúsin er orðin nægilega heit.

Comments


bottom of page