top of page

Hægeldaðar nautakinnar með rjómakenndri parmesan polentu

Góðir hlutir gerast hægt. Það á svo sannarlega við í þessu tilviki, en hér eru nautakinnar eldaðar í bragðmikilli rauðvínssósu í um 5 klst þar til þær hreinlega leka í sundur. Ekki láta tímann hræða ykkur því þetta er í raun sáraeinföld eldamennska. Það erfiðasta er bara að bíða eftir að maturinn verðir tilbúinn á meðan íbúðin fyllist af ljúffengri matarlyktinni.

Fyrir 4:

Nautakinnar, 1 kg / Hægt að panta hjá kjötbúðum með smá fyrirvara

Sellerí, 2 stilkar

Hvítur perlulaukur, 200 g

Gulrætur, 200 g

Sveppir, 150 g

Nautakraftur (duft), 1,5 msk

Hvítlaukur, 1 heill haus

Tómatpúrra, 3 msk

Sítrónublóðberg, 6 g / Eða venjulegt garðablóðberg

Niðursoðnir tómatar, 1 dós / Ég notaði San Marzano tómata

Rauðvín, 3 dl

Polenta, 200 g / Kallast einnig maísmjöl. Fínmalað helst.

Parmesan ostur, 40 g

Matreiðslurjómi, 2 dl

Hveiti eftir þörfum

Salt og pipar eftir smekk

Sprettur til skrauts eftir smekk / Ég notaði rauðsprettur frá Spretta

Steinselja til skrauts eftir smekk

  1. Forhitið ofn upp í 150°C með yfir og undirhita.

  2. Skrælið perlulauk ásamt öllum hvítlauknum. Skerið sveppi í fernt, gulrætur í munnbitastærðir og sellerí í bita.

  3. Skerið stærri nautakinnarnar í tvennt og saltið kjötið svo smá. Veltið kjötinu upp úr hveiti og brúnið vel á öllum hliðum í potti (helst steypujárnspotti). Það er best að brúna kjötið í tveimur skömmtum svo kjötið steikist sem best. Færið á disk til hliðar og geymið.

  4. Lækkið hitann ögn. Bætið perlulauk, hvítlauk, sveppum, gulrótum og sellerí út í pottinn og steikið þar til grænmetið er farið að taka smá lit. Saltið smá.

  5. Bætið tómatpúrru út í pottinn og steikið í 1-2 mín. Bætið rauðvíni út í pottinn og náið upp suðu. Bætið tómötum út í pottinn (kremjið tómatana í höndunum áður en þeim er bætt út í pottinn ef þið eruð að nota heila San Marzano tómata) ásamt kjötkrafti og sítrónublóðbergi/garðablóðbergi. Smakkið til með salti.

  6. Komið kjötinu aftur fyrir í pottinum, setjið lok á pottinn og setjið inn í ofn í 4-5 klst eða þar til kjötið er orðið lungamjúkt og losnar auðveldlega í sundur þegar togað er í það með 2 göfflum.

  7. Takið lokið af pottinum og fleytið mestu fitunni ofan af sósunni. Setjið pottinn aftur inn í ofn án loks og látið malla í um 30 mín á meðan parmesan polentan er útbúin.

  8. Rífið parmesan ost með fínu rifjárni. Setjið 800 ml af vatni í pott ásamt 2 dl af matreiðslurjóma og 1 msk af flögusalti. Náið upp suðu og pískið polentuna svo saman við í nokkrum skömmtum (annars er hætt við að klumpar myndist). Lækkið hitann í lága stillingu og hrærið reglulega í pottinum í um 15 mín. Bætið við ögn af vatni eða rjóma eftir þörfum en polentan á að vera rjómakennd og ekki stíf. Pískið að lokum vænni smjörklípu saman við polentuna ásamt rifnum parmesan osti. Smakkið til með salti.




Comments


bottom of page