top of page

Grillað kjúklingasalat með jarðarberjum, lárperu og hunangs- basilíkudressingu

Svona matur er holdgerving sumarsins fyrir mér. Grillað, létt, ferskt og afskaplega bragðgott!


Hunangs- basilíkudressinging og jarðarberin eru svakalega góð saman og passa afskaplega vel með grilluðu bringunum. Smakkið dressinguna bara til með hunangi og límónusafa þar til hún nær góðu jafnvægi af sætu og súru.

Fyrir 2:

Kjúklingabringur, 2 stk

Eðal kjúklingakrydd, 1 msk

Jarðarber, 250 g

Lárpera, 1 stk

Pekanhnetur, 50 g

Graskersfræ, 25 g

Rauðlaukur, 1 stk

Fetaostur hreinn, 50 g

Blandað salat, 130 g / td Spínat, blaðsalat og klettasalat

Límóna, 1 stk

Hunang, 2 msk

Ólífuolía, 4 msk

Basilíka fersk, 8 g


  1. Setjið kjúklingabringur í skál með smá olíu og kryddblöndu. Blandið saman og látið marinerast í amk 30 mín.

  2. Rífið börkinn af einni límónu (varist að taka hvíta undirlagið með) og kreistið úr henni safann. Pískið hunangi og ólífuolíu saman við. Saxið basilíku mjög smátt og hrærið saman við dressinguna. Smakkið dressinguna til með hunangi, olíu, límónusafa og pínulitlu salti.

  3. Grillið kjúklingabringurnar í 12-15 mín eða þar til þær eru hvítar í gegn og fulleldaðar. Snúið nokkrum sinnum yfir eldunartímann. Sneiðið bringurnar rétt áður en maturinn er borinn fram.

  4. Sneiðið jarðarber, skerið lárperu í bita, sneiðið rauðlauk, skolið og rífið salat niður og myljið fetaost.

  5. Setjið jarðarber, lárperu, rauðlauk, graskersfræ og pekanhnetur í stóra skál og veltið upp úr rúmlega helmingnum af dressingunni. Skiptið á milli skála, toppið með grilluðum kjúklingabringum, meiri fetaosti, hnetum og dressing

Comments


bottom of page