Ég elska Bao bollur! Þær eru svo mjúkar og fluffy og alveg fullkomnar með hægelduðu rifnu grísakjöti.
Maður þarf ekki alltaf að kaupa heila grísahnakka þegar það á að gera pulled pork, heldur er hægt að komast upp með að nota grísahnakka í sneiðum eins og gert er hér. Þá er eldunartíminn töluvert styttri sem gerir það að verkum að það er ekkert mál að gæða sér á þessari uppskrift í miðri viku ef maður vill!
Fyrir 2:
Grísahnakki í sneiðum, 400 g
Bao brauð, 6 stk / Fást frosin hjá Fiska á Nýbýlavegi
Rauðkál, 150 g
Kóríander, 5 g
Agúrka, 100 g
Ristuð sesamfræ, 1 msk
Radísur, 2 stk
Japanskt majó, 60 ml
Kewpie Sesamdresssing, 45 ml / Fæst í Melabúðinni
Gochujang, 1 msk
Sojasósa, 1 msk
Engifermauk eða rifinn ferskur engifer, 1 tsk
Hvítlaukur, 1 rif
Kjúklingakraftur, 1 tsk
Hrísgrjónaedik, 1 tsk
Stillið ofn á 150°C með yfir og undir hita.
Hrærið gochujang saman við sojasósu, engifermauk, 1 pressað hvítlauksrif, kjúklingakraft og hrísgrjónaedik.
Nuddið gochujang blöndunni vel á kjötið, leggið kjötið svo í lítið eldfast mót og hellið botnfylli af vatni (ekki of mikið) í mótið. Bætið restinni af gochujang blöndunni (ef það var afgangur) út í vatnið og hyljið mótið því næst með álpappír.
Bakið kjötið í miðjum ofni í 2-2,5 klst eða þar til kjötið losnar auðveldlega í sundur þegar togað er í það með tveimur göfflum. Gott er að kíkja á kjötið þegar tíminn er hálfnaður og bæta við ögn af vatni ef þa.
Notið tvo gaffla til þess að tæta kjötið niður í eldfasta mótinu og látið liggja í nokkrar mín í krydduðum vökvanum. Smakkið til með salti ef þarf.
Hitið bao bollurnar eftir leiðbeiningum á umbúðum eða hitið í um 30 sek í örbylgjuofni þar til þær eru heitar og mjúkar.
Sneiðið rauðkál eins þunnt og mögulegt er, helst með mandolíni (farið varlega!). Saxið kóríander. Setjið rauðkál, kóríander og sesamdressingu saman í skál og blandið vel saman.
Sneiðið agúrku og radísur í þunnar sneiðar. Raðið sesamsalati, kjöti, japönsku majó og sesamfræjum í brauðin.
Comments